Hver völlur fullnýttur
Fairgame nýtir alla velli frá fyrstu flautu — engar eyður og enginn dauður tími, svo dagurinn rennur snurðulaust frá upphafi til enda.

Að skipuleggja mót með hundruðum leikja er flókið og tímafrekt — og lendir of oft á á fárra herðum.
Breytingar á síðustu stundu skila sér seint eða alls ekki til allra. Það verður oft ósamræmi í gögnum þátttakenda og starfsmanna.
Fairgame leysir þetta
Á meðan við þróum Fairgame vinnum við beint með mótshöldurum, þeim að kostnaðarlausu. Við höldum fyrsta mótið þitt saman, frá fyrstu drögum að lokaflautu.
Þú færð sléttara mót og snemmaðgang að öllu sem við erum að smíða; við fáum raunverulega endurgjöf sem gerir Fairgame betra. Engin gjöld og engar skuldbindingar.
Fyrsta mótið frítt
Fairgame nýtir alla velli frá fyrstu flautu — engar eyður og enginn dauður tími, svo dagurinn rennur snurðulaust frá upphafi til enda.

Heil mót — hvert lið og hver völlur — skipulögð í einni keyrslu með öll skilyrði uppfyllt.

Nægur hvíldartími, aldrei tveir leikir í röð og engar tvíbókanir — hvert skilyrði sannreynt, ekki bara vonað.

Efstu liðin úr hverjum riðli raðast sjálfkrafa í útsláttinn. Dragðu þau saman í þær viðureignir sem þú vilt og fylgstu með sigurvegurum fleyta sér áfram alla leið í úrslitaleikinn — með bronsleik og öllu.

Dómarar skrá stöðuna úr hvaða síma sem er — einn smellur fyrir hvert mark — og hver breyting vistast og samstillist um leið, svo staðan og útsláttartöflur haldast lifandi allan daginn.

Um leið og dómari skráir mark birtist það á lifandi stjórnborðinu — staðan á hverjum velli, leikir í gangi, búnir og næstir á dagskrá, uppfært sjálfkrafa svo mótsstjórnin sér allt í einni yfirsýn.

Viltu frekar senda tölvupóst beint?
info@fairgame.isErtu forvitinn? Viltu fá snemmaðgang? Heyrðu í okkur.